
Bara ef… afmælisbarnið hefði ekki heimtað skilnað fyrir framan alla gestina í óvæntu afmælisveislunni. Bara ef… hægt væri að segja hinum verðandi föður frá jákvæða óléttuprófinu. Bara ef… krakkarnir heimtuðu ekki hund, sá gamli væri ekki dottinn í það uppi í bústað og sögusagnir um framhjáhald ekki komnar á kreik. Bara ef… lífið væri örlítið bærilegra!