"Engum sem farið hefur um Hrútadal dylst það að hann er með fegurstu sveitum landsins." Þannig hefst Dalalíf, stórvirki Guðrúnar Árnadóttur frá Lundi. Hreppstjórinn Jakob Jónsson býr á stórbýlinu Nautaflötum í Hrútadal, ókvæntur og barnlaus. Á miðjum aldri sækir hann sér óvænt brúði í næsta hérað. Lísibetu Helgadóttur. Jón, sonur þeirra, verður sjálfskipaður foringi barnanna af næstu bæjum og þegar þau vaxa úr grasi álítur leiksystirin Þóra í Hvammi sig heitbundna honum. En Lísibet hefur annað konuefni í huga handa syni sínum ..