Margins
Margins
Sign in
Margins
Subscribe to our newsletter
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Einar
Einar
Series · 8 books · 2000-2012
By
Arni Thorarinsson
Books in series
#1
Nóttin hefur þúsund augu
2002
Morð er tilkynnt á Flugvallarhótelinu og Einar blaðamaður er rifinn grúttimbraður upp úr rúminu til að flytja fréttirnar fyrstur allra. Af tilviljun fær hann að heyra ýmislegt sem starfsfélagarnir heyra ekki og verður óvænt helsti heimildamaður þjóðarinnar um þennan hrottafengna glæp. Honum veitir heldur ekki af velgengninni. Síðustu ár hefur hallað undan fæti hjá þessum uppreisnargjarna gleðimanni sem hangir í starfi fyrir náð og miskunn ritstjórans. Einari er falið að fylgja málinu eftir og hann anar af stað. Ekki grunar hann þá að fleira en glæpurinn komi í ljós. Bók þessi kom upphaflega út 1998 og var fyrsta spennusaga höfundarins Árna Þórarinssonar.
#2
Hvíta kanínan
2000
Einar blaðamaður heldur í sólarlandaferð með Gunnsu dóttur sinni en er rétt sestur í makindum með Jim Beam í kóki þegar válegir atburðir gerast. Það er upphafið að æsispennandi og martraðarkenndri atburðarás þar sem enginn og ekkert er eins og sýnist. Þetta er sjálfstætt framhald bókarinnar Nóttin hefur þúsund augu sem kom út 1998, í senn spaugileg lýsing á íslenskum ferðalöngum og áhrifamikil sakamálasaga um skelfileg myrkraverk og ranghverft mannlíf.
#3
Blátt tungl
2001
Einar blaðamaður er að fara í hangikjöt til pabba og mömmu að kvöldi jóladags ásamt Gunnsu dóttur sinni þegar fréttaþulur útvarpsins segir frá mannshvarfi sem hann sér sig knúinn til að grafast frekar fyrir um. Þetta er upphaf spennandi atburðarásar þar sem Einar tekst á við forna og nýja andstæðinga, en ekki síður sjálfan sig. Sjálfstætt framhald fyrri bókanna um Einar blaðamann og í henni er ýmislegt leitt til lykta sem upphófst þar.
#4
Season of the Witch
2005
Newspaper reporter Einar has given up his old stomping ground of chronicling the crime beat in Reykjavik, and moved to the small town of Akureyri, where he’s expected to boost the circulation of the Evening Press. But on his way to a theater rehearsal, Einar finds himself covering a hotter piece of news: a local woman has fallen to her death in an obscure river accident during a company team-building adventure. This is the first – but not the last – death to occur in a sinister course of events that unfold. Arni Thorarinsson intertwines historical heritage with his sensitive perceptions of Icelandic society, weaving an intricate narrative in which each riddle triggers the next.
#5
Dauði trúðsins
2007
Ganga draugar ljósum logum á björtum sumarnóttum um gamalt, yfirgefið hús á Akureyri? Það er eitthvað á seyði og í gúrkutíð er allt hey í harðindum fyrir Einar blaðamann á Síðdegisblaðinu. Sumarhátíðin „Allt í einni“ er að hefjast um verslunarmannahelgina og þúsundir gesta streyma til höfuðstaðar Norðurlands til að skemmta sér. Um leið kvisast út að stjörnur frá Hollywood séu komnar í bæinn fyrir tökur á erótískri spennumynd. Þá er gúrkutíðin úti. Áður en Einar og Ólafur Gísli Kristjánsson yfirlögregluþjónn vita af hrannast verkefnin upp.
#6
Sjöundi sonurinn
2008
Einari blaðamanni á Síðdegisblaðinu er ekki skemmt þegar hann er sendur vestur á firði um hávetur. Ekki líður þó á löngu áður en hann fær fiðring í fréttanefið. Gamalt hús í miðbæ Ísafjarðar brennur, grunur leikur á íkveikju og þekktur fótboltakappi og félagi hans hverfa sporlaust. Þetta er hörkuspennandi samtímasaga um hefnd, græðgi og firringu – saga sem kemur á óvart og lætur sér ekkert óviðkomandi.
#7
Morgunengill
2010
Það er ekki margt líkt með fátækum bréfbera norðan heiða og auðmanni með milljarðaskuldir á bakinu. Örlög beggja fléttast þó saman við leit Einars blaðamanns að réttlæti ekki síður en forsíðufréttum. Sjaldan hefur hann tekist á við jafn erfitt sakamál. Ekkert er eins og áður var. Nema kannski það að eins dauði er annars brauð.
Morgunengill
er grípandi sakamálasaga úr íslenskum samtíma, áleitin og nístandi saga um glatað sakleysi, þörfina fyrir friðþægingu og sátt við eigin uppruna.
#8
Ár kattarins
2012
Lífshættuleg árás fyrir utan skemmtistað í Reykjavík og óhugnanlegur hrekkur í brúðkaupi hrinda af stað atburðarás þar sem ekki er allt sem sýnist. Hver sendir Einari klúru sms-in? Enn ein perlan í glæpasagnafléttu Árna Þórarinssonar um blaðamanninn Einar.
Author
Arni Thorarinsson
Author · 9 books