
Eitur er önnur bókin í glæpasagnaflokknum um tvíeykið Dóru og Rado, harðsoðinn hörkukrimmi sem fjallar á raunsannan hátt um myrkar hliðar Reykjavíkur samtímans. Fyrsta bókin, Brotin, fékk afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og mun koma út í Þýskalandi á næsta ári. Einnig eru í bígerð sjónvarpsþættir byggðir á sögunni. Tökur á erlendum sjónvarpsþáttum standa sem hæst í kvikmyndaverinu í Gufunesi þegar illa farið lík finnst innan í leikmyndinni. Hinn látni reynist vera sambýlismaður lögregluforingjans Elliða, sem setur málið umsvifalaust í hendur þeim sem hann treystir Utangarðslöggunum og ólíkindatólunum Dóru og Rado. Brátt verður ljóst að málið tengist nýjum og banvænum fentanýl-töflum sem bráðliggur á að uppræta. Dóra og Rado leggja því upp í skuggalegt ferðalag um undirheima Reykjavíkur þar sem ópíóðar hafa gerbreytt landslaginu á síðustu árum. En sjálf hafa þau sína djöfla að Dóra heyr baráttu við verkjalyfjafíkn og Rado á bágt með að hrista fortíðina af sér.