
Æsispennandi leikrit fyrir alla fjölskylduna sem segir sögu úr Skaftáreldum. Eftir gríðarlega jarðskjálfta hefst ógnvænlegt eldgos og skömmu seinna steypist hraunstraumur ofan af hálendinu. Sólveig litla og móðir hennar verða að flýja upp í fjallshlíð, þaðan sem þær horfa á bæinn sinn fara undir hraun. Við tekur ný og gjörbreytt tilvera, flótti og leit að húsaskjóli. Með aðalhlutverkið fer Vala Frostadóttir en aðrir leikarar eru Andrea Ösp Karlsdóttir, Örn Árnason, Hilmar Guðjónsson, Hrefna Hallgrímsdóttir, Pétur Eggerz, Alda Arnardóttir og Sigrún Valbergsdóttir Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir, tónlist og hljóðmynd: Kristján Guðjónsson. Verkið er framleitt af Möguleikhúsinu og Storytel með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.