Þetta nýja verk Gyrðis geymir safn fjölbreyttra og einkar vel skrifaðra smásagna. Í sumum sagnanna renna saman draumur og veruleiki með áhrifamiklum hætti, þannig að allt virðist mögulegt, og í öðrum vinnur höfundur eftirminnilega úr íslenskri þjóðtrú. Á stundum vekja smásögurnar óhugnað með lesandanum, en aðrar einkennast af lágstemmdri kímni. Allar bera sögurnar vott um þroskaða stílgáfu höfundar og mynda magnaða og töfrum slungna heild. Bókin hlaut bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 2000.