
Þegar Gunnar Hámundarson á Hlíðarenda biður Otkel nágranna sinn um mat og hey fer af stað atburðarás sem enginn virðist geta stöðvað. Andspænis óvild og öfund þarf Gunnar að taka afstöðu. Fylgir hann ráðum besta vinar síns, Njáls á Bergþórshvoli, og fetar leið skynsemi og sátta, eða fylgir hann Hallgerði konu sinni og ver heiður sinn? Hetjan segir frá þeim hluta Njáls sögu sem mörgum þykir mest spennandi og mörg af gullkornum sögunnar eru hér sett fram í myndrænni frásögn í fyrsta sinn.