Margins
Margins
Sign in
Margins
Subscribe to our newsletter
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Hjartablóð
Hjartablóð
Series · 6 books · 2016-2025
By
Sandra Bergljót Clausen
Books in series
#1
Fjötrar
2016
Árið 1591 fæðist Magdalena Ingvarsdóttir í Smálöndum Svíþjóðar og elst hún upp í vernduðu umhverfi fjölskyldunnar. Í óþökk foreldra sinna hefur hún ung ástarsamband við fátækan mann af þjóðflokki Sama. Parið er staðráðið í að auka lífsgæði sín og leitar í sameiningu að betra lífi. Við taka ævintýri sem enginn sér fyrir. Fjötrar er fyrsta bókin bókaflokknum Hjartablóð.
#2
Flóttinn
2017
Hér er kominn önnur bókin í seríunni Hjartablóð og er um sjáfstætt framhald að ræða. Fyrsta bókin Fjötrar vakti mikla athygli þegar hún kom út 2016 og fjölmargir lesendur hafa beðið spenntir eftir framhaldinu. Eftir æsileg ævintýri og mikla lífshættu í heimkynnum sínum í Smálöndum Svíþjóðar er söguhetjunni Magdalenu að lokum rænt af hættulegum óvini. Hún er færðað dimmum ströndum Íslandsþar sem nýjar ógnir hellast yfir hana. Ísland í greipum miðaldra er land galdra og myrkurs, ofsa og illsku og líka nýrra ævintýra. En úlfur í sauðagæru situr um hana. Mun Magdalena finna ást sína aftur?
#3
Ferðin
2018
Ferðin er þriðja bókin í seríunni Hjartablóð og er um sjálfstætt framhald að ræða. Fyrstu tvær bækurnar, Fjötrar og Flóttinn, náðu miklum vinsældum og í þessari fáum við að skyggnast enn dýpra inní hugarheim Magdalenu Ingvarsdóttur, aðalsögupersónu bókanna. Magda reynir allt til að komast aftur heim til síns heittelskaða Ara. Hún þreytir för með ókunnri áhöfn til Svíþjóðar eftir langa vist á Íslandi. Með viðkomu á ókunnum eyjum á miðju hafi virðist ferðin engan endi taka. En því nær sem hún færist heimahagana því meira efast hún um að geta gengið að sama lífinu aftur. Mun Ari bíða hennar eftir allan þennan tíma? Fylgist með lífi fjölskyldunnar í Laufskógum í spennandi og átakanlegri sögu Hjartablóðs.
#4
Fjöllin
2025
Þá er komin út fjórða bókin í hinni geysivinsælu seríu hjartablóðs. Í þessari bók halda Magda og Ari á vit flokksins til að heiðra minningu Esterar. Á leið sinni um djúpa dali og milli hárra fjalla lenda þau í ýmsum hættum sem þau óraði ekki fyrir. Fortíðardraugar skjóta upp kollinum og kynni Mögdu af flokknum verða önnur en hún ætlaði. Við höldum áfram að fylgjast með fjölskyldunni í Laufskógum og fólkinu í Smögen, gleði þeirra og sorgum, vonum þeirra og þrám á 17 öld í Svíþjóð. Ef þú hefur ekki hlustað á Fjötra, Flóttann eða Ferðina þá mælum við eindregið með því að þú gerir það þó hér sé um sjálfstætt framhald að ræða.
#5
Krákan
2020
Í fimmtu bók Hjartablóðs fylgjumst við með afkomendum Magdalenu og Ara, þeim Ester og Evu. Tvíburasysturnar eru ólíkir persónuleikar en ákaflega fallegar og finna fljótt að lífið er ekki einfalt fyrir ungar stúlkur á sautjándu öld í Svíþjóð. Ýmsar hremmingar henda þær og þá sérstaklega Ester, eða Krákuna eins og hún hefur verið kölluð frá blautu barnsbeini. Eins og krákan fer Ester sínar leiðir, hún er klár, gleymir aldrei en getur líka verið lævís. Hún er í ofanálag ekki ýkja ólík móður sinni þegar kemur að hvatvísi. Eirðarleysi Krákunnar veldur Mögdu kvíða því hún þekkir það af fyrri reynslu að slík hegðun bjóði hættunni heim. Hörmulegur atburður á síðan eftir að skekja sveitina og valda því að heimilið í Laufskógum er ekki lengur öruggur staður. Óvinir leynast víða, hefndarblóð drýpur og úr verður atburðarás sem enginn getur séð endann fyrir.
#6
Hrafninn
2021
Hrafninn er sjötta bókin í Hjartablóðsseríunni. Þegar hér er komið sögu eru Ester og Gissel á flótta frá yfirvaldi í Mariestad. Þau ferðast gegnum djúpa dali Svíþjóðar allt að rótum fjallanna þar sem flokkur Ara, siida, tekur þeim opnum örmum. Ástin brennir hjartað en í húmi nætur sjá þau ekki hrafnana sem fylgja skuggum þeirra eftir þar sem þeir bíða átekta. Finna að dauðinn er nærri. Meðal flokksins búa leyndarmál sem Ester eru hulin en fljótt lítur sannleikurinn dagsins ljós og lífið verður aldrei samt aftur. Fylgist með þessari geisivinsælu seríu sem líkt hefur verið við bækurnar um Bridgerton.
Author
Sandra Bergljót Clausen
Author · 6 books