Fjórir ungir drengir róa í leyfisleysi út á stórt stöðuvatn. Einn fellur útbyrðis og er nærri því drukknaður. Tíu árum síðar hverfa tvö ungmenni sama dag, piltur og stúlka. Pilturinn ákveður að leita stúlkunnar en hversdagsleikinn breytist brátt í botnlaust hyldýpi. Stílfimi og innsæi höfundar er á sínum stað og sögusviðið ískyggilegt sem fyrr.