
Húgó og Alex eru búin að týna hvort öðru en halda þrátt fyrir það áfram leitinni að síðustu steinstyttunni. Á meðan þau kljást við úrillan dreka, blóðþyrsta drottningu og allt of kurteist skrímsli, sveimar Illfyglið yfir öllu saman og veit að brátt mun tími þess renna upp. Illfyglið er fyndin og feykilega spennandi saga ætluð átta til tólf ára lesendum. Þetta er lokabindið í þríleiknum um Húgó og Alex og hættuför þeirra til að bjarga heimabyggð sinni.