Íslensk fjölskylda flyst til Minitoba í Kanada í lok 19. aldar. Á leið yfir slétturnar miklu villist ung kona frá eiginmanni sínum með nýtfætt stúlkubarn. Þegar brjóstamjólkin er þorrin og þær að dauða komnar bjargar móðirin lífi barnsins með því að gefa því blóð sitt að drekka. Stúlkan Elísa kemst af en er eftir þetta brennimerkt sem norn. Hér er sögð uppvaxtarsaga Elísu. Hún berst fyrir betra lífi þar sem hver dagur er áskorun um að standa sig. Háski leynist víða og launráð eru brugguð. Óvinir Elísu svífast einskis svo hún þarf að sýna hvað í henni býr. Þegar sorgin knýr dyra kemur ástin inn í líf hennar en hún mun einnig verða dýrkeypt. Elísa er brennimerkt fortíðinni en á hún von um betri framtíð? Spennandi ungmennasaga eftir kanadíska rithöfundinn Carol Gardarsson sem sent hefur frá sér fjölmargar bækur. Norn er fædd er fyrsta bókin af fimm um Elísu og fjölskyldu hennar.