
"Bjölluhljómurinn kallar sauði sína. Þeir sem nema finna eirðarleysið í hverri frumu og óljósa þrá sem togar." Þetta er sagan um hana Katrínu, vini hennar og kunningja sem berast með straumi tímans. Þeim er fylgt í gleði og sorg um hippadóm og upphaf auðhyggjuskeiðs. Katrínarsaga er áttunda bók höfundar en hún hefur áður sent frá sér fjórar ljóðabækur, skáldsögu, örsagnasafn og smásögur.