Margins
Margins
Sign in
Margins
Subscribe to our newsletter
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Álagadalurinn
Álagadalurinn
Series · 2 books · 1989-1990
By
Heiður Baldursdóttir
Books in series
#1
Álagadalurinn
1989
Í Álagadalnum segir frá systrunum Gígju og Krúsu sem ganga inn í ævintýraveröld sem er engri lík. Þar hitta þær píslirnar eldfjörugu sem líkjast börnum, en eru þó ekki börn. Þær kynnast álfadrottningunni með silfurfjaðrirnar, kettinum Kisa sem talar mannamál, Silfurdögg, Mána og hinu fólkinu sem býr í Álagadalnum ævintýralega. En hættur eru við hvert fótmál. Í ævintýrinu verða átök milli hins illa og hins góða, en fulltrúar hins góða eru í álagafjötrum. Systurnar hrífast með í atburðarásina og þurfa að glíma við vandamál sem þær þekkja ekki úr daglegu lífi sínu. Álagadalurinn er athyglisverð og stórskemmtileg íslensk bók sem á erindi inn á hvert heimili þar sem börn eru.
#2
Leitin að demantinum eina
1990
Leitin að demantinum eina er heillandi og grípandi saga. Hún segir frá Krúsu sem villist inn í ævintýraveröld sem er öðrum hulin og þar hittir hún ýmsar kynjaverur sem flestar eru góðar og vingjarnlegar. En þarna eru líka illar vættir og yfir ævintýraheiminum vofir ógn sem gæti tortímt honum. Í fylgd með Almari vini sínum leggur Krúsa af stað í mikla hættuför til að reyna að bjarga þessari sérstæðu veröld. Á spennandi og ævintýraríkan hátt fjallar sagan um baráttu góðs og ills en um leið um gildi vináttu og heiðarleika. Leitin að demantinum eina er sjálfstætt framhald Álagadalsins, sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1989.
Author
Heiður Baldursdóttir
Author · 2 books