ég tel mig ganga inn í birkilund finn ekkert nema reykmökk mýri en dásamlegt hugsar fræðingurinn í mér sem tekur sýni les úr lögum dulmyndir nóterar hjá sér engir hringir en brot úr spíral greinir í eftirfarandi vísi Sunneva Kristín Sigurðardóttir er skáld og þjóðfræðingur úr Hafnarfirði. Skrif hennar hafa birst í tímaritum og safnbókum. Hún lauk MA-prófi í hagnýtri ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í ritlist við sama skóla. Mars er hennar fyrsta ljóðabók.