
María er tuttugu og tveggja ára. Hún er komin til Reykjavíkur til að sækja litina hans Karls Kvarans. Svo ætlar hún að fara. „Ég las þessa bók ekki – ég drakk hana í mig. Óþægilega sannfærandi portrett af Íslandi samtímans sem birtist okkur hér sem dimmt og grimmt þjóðfélag þar sem lítil hjörtu þurfa á stórum stígvélum að halda til að geta fótað sig.“ — Hallgrímur Helgason