Harðsoðni lögfræðingurinn Stella er í hringiðu hrunsins, sem er þó aðeins baksvið atburðanna. Nektardansmær hverfur og enginn vill leita hennar. Á Hrauninu situr erlendur dópsmyglari sem vill fá Stellu sem lögfræðing. Gamall maður deyr eftir að hafa játað á sig glæp – og eftir forsetaveislu á Bessastöðum finnst blóðugt lík við altarið í kirkjunni.