Margins
Margins
Sign in
Margins
Subscribe to our newsletter
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Mórún
Mórún
Series · 2 books · 2015-2016
By
Davíð Þór Jónsson
Books in series
#1
Mórún – í skugga skrattakolls
2015
Á botni hins ísi lagða Sviðnavatns, lengst norður í heimskautinu, liggur varningur sem ráðið gæti niðurlögum allra viti borinna kynþátta ef hann kæmist í rangar hendur. Þess vegna er vatnsins stöðugt gætt af voldugri systrareglu þar sem allir kynþættir eiga fulltrúa; menn, álfar, tröll, svartálfar og dvergar. Þegar nornirnar við Sviðnavatn taka að verða fyrir síendurteknum árásum öflugs en ósýnilegs óvinar vandast þó málið. Mórún Hróbjarts álfamær og bogliðaforingi er fengin til að skerast í leikinn. En þá fyrst hefst bardaginn fyrir alvöru. Í skugga Skrattakolls er fyrsta bókin um Mórúnu Hróbjarts. Atburðarásin er hröð og spennandi. Sagan er því kjörin lesning fyrir alla unnendur hreinræktaðra fantasíubóka, ekki síst ungmenni.
#2
Mórún – stigamenn í Styrskógum
2016
Styrskógar eru gríðarlegt landflæmi þéttvaxið háum trjám og harðgerðum þyrnigróðri. Þar hefur illskeyttur hópur stigamanna ráðið lögum og lofum um hríð. Í hvert sinn sem þeir fremja rán hverfa þeir eins og hendi væri veifað en skjóta svo aftur upp kollinum á allt öðrum stað í skóginum skömmu síðar. Fógeti erkifurstans er úrræðalaus. Ekkert virðist geta ráðið niðurlögum ræningjanna. En þá verða þeim á afdrifarík mistök. Þeir reyta Mórúnu Hróbjarts til reiði. Stigamenn í Styrskógum er önnur bókin um Mórúnu Hróbjarts. Hún er sjálfstætt ævintýri, en þó beint framhald af Í skugga Skrattakolls, sem hlaut afbragðsgóðar viðtökur og einróma lof þegar hún kom út. Atburðarásin er hröð og spennandi. Sagan því kjörin lesning fyrir alla unnendur hreinræktaðra fantasíubókmennta, ekki síst ungmenni.
Author
Davíð Þór Jónsson
Author · 2 books