Mörufeldur, móðurhamur er fyrsta ljóðabók Guðrún Heiður Ísaksdóttir og sú 24. í seríu Meðgönguljóða, bókaflokki Partusar helguðum nýjabruminu í íslenskri ljóðlist. Leiðarstef Guðrúnar í bókinni er setning úr upprifjun Jóns Grunnvíkings af fyrsta kafla Heiðarvíga sögu, sem glataðist í eldi. Þannig gefur hún til kynna að ljóðverkið sé samansafn ótengdra brota úr hálfgleymdri ævi.