
Hefurðu heyrt um íslensku þjóðsögurnar? Þær eru fullar af skessum og skrímslum, álfum og uppvakningum, jólasveinum og draugum. En hvað myndir þú gera ef þú hittir þessar verur? Þín eigin þjóðsaga er öðruvísi en allar aðrar bækur – hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Sögusviðið er heimur íslensku þjóðsagnanna og hætturnar leynast við hvert fótmál. Þú getur rekist á Djáknann áMyrká, séð stórhættulegar íslenskar hafmeyjur, glímt við sjálfan Lagarfljótsorminn og bjargað Karlssyni og Búkollu frá hræðilegustu tröllum sem sést hafa hér á landi! Yfir fimmtíu ólíkir endar. Myndir eftir: Evana Kisa