
Ungur maður, sem missti vinnuna á Vísindavefnum fyrir að svara út í hött, heldur í sumarleyfi til Ítalíu, ásamt eiginkonu og syni. Í farteskinu eru leifar af óræðri þoku sem lagst hefur yfir Reykjavík og landið allt, minningar um ástir sem farið hafa forgörðum og sorgir sem aldrei hafa verið færðar í orð. Listilega skrifuð bók um fermingarmyndir í fjöru, þoku sem mátar skó og hið tortímandi afl ástarinnar.