
Veturinn 1860 missa systurnar Anna og Rise móður sína og standa eftir munaðarlausar. Þær bjuggu með móður sinni á fjallabýlinu Knatten og þurfa nú skyndilega að sjá um sig sjálfar þennan kalda vetur á fjallinu. Systurnar eru staðráðnar í að sigrast á öllum erfiðleikum og á meðan þær geta stólað hvor á aðra eru þær fullvissar um að þær komist í gegnum hvað sem er. Hér er komin fyrsta bók í seríunni Fjallalíf eftir Laila Brendan.