
Til þeirra sem málið varðar er ástríðufullt ávarp til samtíðarinnar þar sem bjartir tónar og dimmir kallast á og ljóðstefin eru jöfnum höndum heilabrot um upphaf og endalok, efa og óvissu, sjálfa eilífðina – og vangaveltur um undur hversdagsins; ástina, náttúruna og daglegt streð mannanna. Einar Már Guðmundsson er skáld sem lætur sér annt um veröldina, ávallt glöggur, beinskeyttur og hnyttinn, og á hér erindi við þá sem málið varðar – okkur öll.