
Illur máni er dreginn á næturhimin og langur vetur í nánd! Fyrir mörgum öldum spáði jórskur prestur því, að upp rynni öld Vargsins með svartnætti sínu og óvættum. Þegar ókunnar verur ráðast á þorpið Vegamót slær óhug að íbúum þess og fær Ráðgríð, ásamt vini sínum Hræreki, það verkefni að láta greifann af Norðmæri vita en sú ferð á eftir að draga dilk á eftir sér og mun reyna á vináttu þeirra. Hefur Ráðgríð það sem þarf til að verða hetja? Vargsöld er fyrsta sagan um í bókaflokki Ráðgríð og ævintýri hennar. Áður hafa verið gefnar út tvær bækur eftir Þorstein Mar, smásagnasafnið Myrkfælni og skáldsagan Þoka. Hægt er að lesa fyrsta kafla sögunnar hér.