
Eftir að hafa unnið frækilegan sigur á ránsflokki víkinga fyir Hákon jarl í Noregi fær Þráinn Sigfússon leyfi til að fara heim til Íslands. En áður en hann kemst heim hittir hann óvænt fyrir landa sína og sá fundur verður þeim öllum afdrifaríkur. Vetrarvíg er sjálfstætt framhald verðlaunabókanna Blóðregns og Brennunnar, myndasagna sem byggðar eru á Brennu-Njáls sögu. Hér stíga fram margar persónur sem áður hafa komið við sögu, eins og Kári Sölmundarson, Njáll og Bergþóra og synir þeirra með Skarphéðinn fremstan í flokki, og ólíkindatólin Gunnar og Sigurður Lambasynir. Auk þeirra birtast nú í fyrsta sinn þekktar söguhetjur eins og Þráinn, Hallgerður langbrók og Hrappur Örgumleiðason.