
Árstíðir koma og fara meðan fólk leitar að vormerkjum og haustlitum. Víða hefur kvarnast úr sparistelli og margt sem ætlað var til bráðabirgða er orðið að föstum punktum í tilverunni. Óvissustig er fjórða ljóðabók höfundar sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sitt fyrsta verk og hefur tvívegis hlotið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.