
Þær koma fótgangandi til Reykjavíkur, tvær vinkonur, í von um að fá vist í góðu húsi. Verða samt að byrja í þvottum, saltfiski og kolaburði – þeirri vinnu sem konur eiga kost á til að sjá sér farborða. Lífið er strit. Þó vilja þær heldur strita og ráða sér sjálfar í kaupstaðnum en vera öðrum háðar uppi í sveit. Vonarlandið er Reykjavíkursaga sem gerist á seinni hluta 19. aldar, saga nokkurra alþýðukvenna sem búa saman í litlu koti og reyna að bjarga sér sem best þær geta. Áföll dynja yfir en þær kunna líka að snúa á tilveruna og brosa framan í heiminn.