Margins
Margins
Sign in
Margins
Subscribe to our newsletter
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Æviminningar Tryggva Emilssonar
Æviminningar Tryggva Emilssonar
Series · 2 books · 1976-1978
By
Tryggvi Emilsson
Books in series
#1
Fátækt fólk
1976
Fátækt fólk, fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, vakti mikla athygli og umtal þegar bókin kom út árið 1976 – fyrir fádæma orðsnilld, persónusköpun og stíl en þó fyrst og fremst fyrir þá sögu sem þar var sögð. Söguna af fátæku fólki á Íslandi fyrir tíma almannatrygginga; þegar hægt var að taka björgina frá barnmörgu heimili vegna þess að kaupmaðurinn þurfti að fá sitt; þegar litlum börnum var þrælað út í vist hjá vandalausum; þegar sjálfsagt þótti að senda hungrað barn gangandi tvær dagleiðir í vondu veðri til að reyna að fá úttekt í versluninni. Frásögn Tryggva af uppvexti sínum, móðurmissi og vondum vistum snemma á síðustu öld hefur engu glatað af styrk sínum og töfrum og á ef til vill ennþá brýnna erindi við okkur nú en þegar hún kom fyrst út. Þorleifur Hauksson hafði umsjón með útgáfunni og ritaði formála.
#2
Baráttan um brauðið
1978
Í Fátæku fólki, fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, var tekið með kostum og kynjum þegar það var endurútgefið árið 2010 og í Morgunblaðinu var fullyrt að bókin væri „ein merkasta og áhrifamesta ævisaga sem skrifuð var hér á landi á 20. öld“. Baráttan um brauðið hefst árið 1920 þegar Tryggvi er sautján ára og fylgir honum í vinnumennsku, við búskaparhokur, gegnum illskeytta berkla og atvinnuleysi. Þegar íslensk alþýða rís upp gegn smánarkjörum sínum tekur Tryggvi þátt í þeirri baráttu af heilum hug. En aldrei gleymir hann því sem skipti hann mestu: ást á náttúrunni, kærleika til náungans og virðingu fyrir skáldskapnum.
Author
Tryggvi Emilsson
Author · 2 books