Stríðið í Evrópu ratar til Íslands þegar nasistar ganga á land í Reykjavík vorið 1940. Sigurður Jónasson, ungur starfsmaður hjá Landsímanum, fylgist með hvernig fólk aðlagast hinu nýja Hitlers-Íslandi, margir græða og þjóðernissinnar sækja í sig veðrið. En þegar slettist upp á vinskap Hitlers og Stalíns í austri fer vísir að íslenskri andspyrnuhreyfingu að verða til. Hvað er það sem nasistar eru í raun að vilja á Íslandi? Og hvað eru þeirra helstu vísindamenn að gera á hálendinu? Sigurður og félagar hans halda í hættuför þar sem markmiðið er að koma í veg fyrir það sem virðist vera óhjákvæmilegur sigur Þjóðverja í stríðinu. Örninn og Fálkinn er æsispennandi skáldverk um veruleika sem hefði getað orðið ef herlið Hitlers hefði komið á undan Bretum til Íslands. Valur Gunnarsson (f. 1976) er sagnfræðingur, rithöfundur og blaðamaður. Eftir hann eru skáldsögurnar Konungur norðursins (2007) og Síðasti elskhuginn (2013) sem báðar fengu góða dóma. Hann hefur haft áhuga á síðari heimsstyrjöldinni frá því að hann var í breskum barnaskóla og þess var minnst að 40 ár voru liðin frá stríðslokum. Örninn og Fálkinn er þriðja skáldsaga Vals Gunnarssonar.