
Þessi óvenjulega fjölskyldusaga gerist í íslensku sjávarþorpi. Þar býr ekkjumaður með fjórum sonum sínum. Yfir feðgana ganga ýmsar hremmingar og lítil hjálp í að látnir fjölskyldumeðlimir vaki yfir þeim af áhuga. Frásögnin er á köflum ljóðræn, stundum hranaleg, stundum hlýleg, jafnvel prakkaraleg. Andrúmsloft bókarinnar er ógvænlegt og hrollvekjandi en um leið magnað persónulegum húmor. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1997.