
Þegar Chas Featherby, aldraður sjómaður í Hull, deyr, bíður sonar hans á Íslandi, Arnar Featherby, óvæntur arfur: tæplega tvö hundruð skópör. Um svipað leyti fá Örn og félagi hans Jón, sem lærði kvikmyndaleikstjórn í Prag en starfar sem bókavörður í Hafnarfirði, langþráð tækifæri upp í hendurnar: vilyrði fyrir styrk frá gömlum skólafélaga, lyfsalanum Alfreð Leó, til að framleiða leikna bíómynd. Til að ná í föðurarf Arnar ákveða þeir félagar að ferðast saman til Englands – sjóleiðina – og í farangrinum eru drög að kvikmyndahandriti. Atburðarásin sem þá fer af stað er skráð af Jenny Alexson, fyrrum mágkonu Jóns. Bók þessi er óbeint framhald af síðustu skáldsögu hans, Sendiherranum.