Fremsti rithöfundur Íslands vaknar í brekku í afskekktum dal við það að lítill strákur potar í hann fingri. Hvar er hann? Er hann dáinn? Ekki minnkar undrun hans þegar þungstígur bóndi, tyrfinn og illúðlegur, tekur hann í fangið og ber hann heim í sitt frumstæða kot þar sem margt er kunnuglegt. Er hann staddur í eigin höfundarverki?