Margins
2023
First Published
3.89
Average Rating
337
Number of Pages

Líf Jófríðar og annarra í skaranum hennar stjórnast af árstíðunum. Þau eyða sumrinu í Fellsskógi, haustinu á Húsavík og á veturna, þegar hrímsvelgirnir koma niður af hálendinu, þurfa þau að flýja út á ísinn á Mývatni. Hætturnar leynast við hvert fótmál en allt er samt í föstum skorðum – þar til líf Jófríðar umturnast. Hún þarf ekki bara að velja milli Suðra, myndarlega stráksins í Ljósavatnsskaranum, og æskuvinar síns, Bresa, heldur hvílir ábyrgðin á velferð skarans skyndilega á hennar herðum. Hrím er ævintýraleg þroskasaga um ástir og örlög á annars konar Íslandi þar sem mannfólk deilir landinu með risavöxnum dýrum og lífsbaráttan er hörð. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla ungmennabóka og hlotið fyrir þær ýmsarviðurkenningar, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur.

Avg Rating
3.89
Number of Ratings
85
5 STARS
27%
4 STARS
47%
3 STARS
19%
2 STARS
2%
1 STARS
5%
goodreads

Author

548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved