Margins
Kasia og Magdalena book cover
Kasia og Magdalena
2024
First Published
3.88
Average Rating
191
Number of Pages

Magdalena er í haldi lögreglu, ötuð blóði. Tveir menn létu lífið á heimili hennar fyrr um kvöldið, að því er virðist með voveiflegum hætti. Í yfirheyrslum gefur Magdalena lítið upp um atburði kvöldsins því lögreglan má alls ekki komast að því að hún var ekki sú eina sem slapp lifandi út úr íbúðinni. Magdalena hefur verið undir eftirliti Barnaverndarnefndar stærstan hluta ævinnar og dvalið á ótal fósturheimilum. Mamma hennar glímir við fíkn og þótt hún hafi ævinlega gert sitt besta hefur það ekki alltaf verið nóg. Undanfarin ár hafa þær mæðgur þó búið saman og lífið verið býsna gott, en nú virðist mamma hennar vera að missa fótanna aftur. Þegar Magdalena verður ástfangin af Kasiu finnur hún loks öryggið sem hana hefur alltaf skort. Þess vegna lætur hún allar vísbendingar um skuggalega fortíð hennar sem vind um eyrun þjóta. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda ungmennabóka og hlotið fyrir þær ýmsar viðurkenningar, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar. Hún hefur jafnframt verið tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Avg Rating
3.88
Number of Ratings
57
5 STARS
26%
4 STARS
42%
3 STARS
25%
2 STARS
7%
1 STARS
0%
goodreads

Author

548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved