Stórglæsileg bók um Jóhannes S. Kjarval, meistara íslenskarar myndlistar, þar sem listferli hans eru gerð ítarleg skil í máli og myndum. Í bókinni er einnig kafli um þátt Kjarvals í lista- og menningarvakningu íslensku þjóðarinnar á 20. öld, annar um margbrotinn persónuleika hans, og auk þess myndskreyttur æviannáll og yfirgripsmiklar tilvísana- og myndaskrár.