Margins
Ljónið book cover 1
Ljónið book cover 2
Ljónið book cover 3
Ljónið
Series · 3 books · 2018-2020

Books in series

Ljónið book cover
#1

Ljónið

2018

Kría er að byrja í MR. Þar þekkir hún engan og enginn veit um það sem gerðist á Akureyri. Hún hefur litlar væntingar en kynnist Elísabetu, og þrátt fyrir strangt nám er menntaskólalífið frábært. Þegar Elísabet finnur gamalt skrín í földum skáp fara þær Kría að rannsaka undarlegt mál stúlku sem hvarf sporlaust fyrir 79 árum. Kría hittir líka hinn dularfulla Davíð sem kemur og fer eins og kötturinn. Brátt kemur svo í ljós að hvarf stúlkunnar gæti haft óvænta tengingu við líf Kríu. Ljónið er fyrsta bók í nýjum þríleik eftir margfaldan verðlaunahöfund; hörkuspennandi ungmennasaga sem gerist í samtímanum en teygir anga sína aftur til óngvekjandi atburða í fortíð.
Nornin book cover
#2

Nornin

2019

Alma Khan veit ekki af hverju henni, óbreyttum nítján ára starfsmanni í baunahúsinu á Hellisheiði, er boðið starf í einkagróðurhúsi hinnar heimsfrægu Dr. Olgu Ducaróvu. Helst dettur henni í hug að það tengist eitthvað Kríu ömmu hennar, sem þekkir Olgu eftir alræmdan leiðangur þeirra til Mars. Þegar Alma kynnist svo hinni leyndardómsfullu Indru umturnast lífið endanlega. Árið er 2096 og náttúran er óútreiknanleg. Gamli miðbærinn er afgirtur og þar standa fúin hús í flæðarmálinu. Eitt þeirra á amma Ölmu og enginn skilur hvers vegna það er henni svona mikilvægt. Nornin er framhald Ljónsins sem kom út 2018. Ljónið hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla ungmennabóka og hlotið fyrir mikið lof gagnrýnenda. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Vetrarhörkur, sem ásamt Vetrarfríi var jafnframt tilnefnd sem ungmennabók ársins í Tékklandi.
Skógurinn book cover
#3

Skógurinn

2020

Allt líf Kríu hefur litast af hvarfi Gerðu ömmu hennar sem hún varð vitni að á unglingsaldri. Því hugsar hún sig ekki tvisvar um þegar dótturdóttur hennar bíða sömu örlög sjötíu og níu árum síðar og fórnar sér í hennar stað. Þá fær Kría loksins að sjá hvað leynist handan við dularfulla skápinn í risherberginu við Skólastræti og svör við spurningum sem hafa ásótt hana árum saman. Skógurinn er lokabindi rómaðs þríleiks Hildar Knútsdóttur þar sem saman fer spennandi saga og ævintýralegt hugmyndaflug. Báðar fyrri bækurnar, Ljónið og Nornin, voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlutu Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, fyrir þá fyrri hlaut Hildur Barnabókaverðlaun Reykjavíkur.

Author

548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved