Margins
Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum book cover
Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum
2015
First Published
4.00
Average Rating
62
Number of Pages

Handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2015. Í umsögn dómnefndar kemur fram að henni hafi verið ánægjulegur vandi á höndum, sem var að lokum erfitt val á milli nokkurra góðra handrita. Þegar upp var staðið var hún hins vegar öll sammála um að heildstæðasta handritið og það sem fremst stæði meðal jafningja væri það sem nú er komið á bók undir heitinu Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum. Eitt helsta einkenni hennar væri myndvísi. Hún ber vitni góðri myndgáfu höfundar en hann hefur líka eftirtektarverð tök á að klæða þær myndir í orð. Annað einkenni þessarar bókar væri að tefla saman að því er virðist óskyldum hlutum af vissum óhátíðleika. Þetta skapaði ákveðna spennu sem ljær ljóðunum aukna dýpt. Kæruleysið á yfirborðinu leynir á sér. Fjölbreytileiki er líka einn styrkur bókarinnar, hún er margradda í góðum skilningi; tekist er á við heimspekileg viðfangsefni jafnhliða þeim sem stundum eru kölluð hversdagsleg, en eru auðvitað alveg jafn sígild, hér eru prósaljóð og frásagnir jafnframt knöppum og meitluðum ljóðum. Tilfinningin er sú að lífið leyni á sér, ekkert er sem sýnist, lífið er sem næturveiði og því gildir að skyggnast dýpra í hylinn.

Avg Rating
4.00
Number of Ratings
17
5 STARS
24%
4 STARS
53%
3 STARS
24%
2 STARS
0%
1 STARS
0%
goodreads

Author

548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
© 2025 Paratext Inc. All rights reserved