Margins
Margins
548 Market St PMB 65688, San Francisco California 94104-5401 USA
hello@margins.app
·
+1 (650) 223-5283
Privacy Policy
·
Terms of Use
© 2026 Paratext Inc. All rights reserved
Vetrarfrí
Vetrarfrí
Series · 2 books · 2015-2016
By
Hildur Knútsdóttir
Books in series
#1
Vetrarfrí
2015
Það er síðasti dagur fyrir vetrarfríið. Bergljót hlakkar til að fara í tíundabekkjarpartý og Bragi bróðir hennar ætlar að gista hjá vini sínum. Foreldrarnir stefna á rómantíska sumarbústaðarferð. En allar áætlanir fara fyrir lítið þegar furðuleg plága brýst út. Eftir það hugsar enginn um neitt annað en að bjarga lífi sínu. Hildur Knútsdóttir hefur áður sent frá sér skáldsöguna Slátt og unglingasöguna Spádóminn. Vetrarfrí er hörkutryllir sem engin leið er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum.
#2
Vetrarhörkur
2016
Án þess að átta sig á því hafði hún verið farin að leggja drög að nýju lífi. Og þrátt fyrir óttann um Braga hafði hún upplifað sig örugga. En það öryggi var nú fokið út í hafsauga. Þær voru komnar. Þær voru hér. Enginn veit hversu margir lifðu af geimveruárásina sem gerð var á landið. Bergljót og pabbi hennar eru enn í Vestmannaeyjum og nú hefur heyrst lífsmark frá Braga bróður hennar ofan af landi. Spurningarnar eru óteljandi: Hvað vilja geimverurnar? Er hægt að sigrast á þeim? Verður lífið einhvern tíma venjulegt á ný? Vetrarhörkur er seinni hluti sögunnar sem Hildur Knútsdóttir hóf í Vetrarfríi, æsispennandi bók sem naut mikilla vinsælda, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur, og hlaut Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna.
Author
Hildur Knútsdóttir
Author · 16 books