


Books in series

#1
Ögonvittnet
2018
Ett brutalt mord har begåtts i pittoreska fiskeläget Lerviken vid Öresund. En kvinna har avrättats och fått sina ögonlock upptejpade. Mordet sker dagen efter att Harriet Vesterberg flyttat in i sin pappas hus, ett stenkast från brottsplatsen. Plötsligt är Lerviken långt från den idyll där hon tillbringade sin barndoms somrar. Harriet har precis lämnat Stockholm och en havererad kärleksrelation bakom sig för en nystart som utredare hos polisen i Landskrona. Men hon förstår snabbt att hon inte är så välkommen på stationen som hon hade önskat och att hennes idéer inte uppskattas. Hon bestämmer sig för att gå sin egen väg, men den leder in henne på ett spår som hon snart desperat ångrar att hon började följa. Kan mördaren vara någon hon känner?
Ögonvittnet är en tempofylld och spännande deckare som utspelar sig i Öresundstrakten, med en smart, rolig och ofullkomlig hjältinna som huvudperson.

#2
Skuggaleikur
2019
Kona hverfur við undarlegar aðstæður og allt bendir til þess að henni hafi verið rænt. Stuttu síðar rekur lík á land í Leirvík, friðsælu sjávarþorpi við Eyrarsund og erfiðlega gengur að bera kennsl á líkið.
Rannsóknarfulltrúinn Helena Vesterberg býr í Leirvík og blandast í málið því konunni sem var rænt er Lísa, besta vinkona hennar. Helena gerir allt í sínu valdi til þess finna Lísu og eftir því sem rannsóknin á hvarfi hennar vindur upp á sig kemur í ljós að ekki er allt með felldu í þorpinu snotra við Eyrarsund. Pólitísk öfl reyna að hafa áhrif á gang lögreglumála á staðnum og allt er á suðupunkti vegna yfirvofandi leiðtogafundar Evrópu í nágrenninu.
Inn í æsispennandi atburðarásina fléttast flókið einkalíf Helenu sem, ásamt því að hugsa um aldraðan föður sinn, reynir að halda nýjum kærasta leyndum fyrir samstarfsfólki sínu, með misjöfnum árangri.
Helenu Vesterberg þekkja íslenskir lesendur úr fyrstu bókinni í Morðunum í Leirvík, Sjónarvotti, sem sló rækilega í gegn á Storytel. Helena Vesterberg svíkur ekki lesendur sína í þessari nýju bók. Hér í frábærum lestri Birgittu Birgisdóttur.

#3
Skuggabaldur
2020
Eina kalda og dimma nóvembernótt í smábænum Leirvík verður ung kona fyrir grófu kynferðisofbeldi og allt bendir til þess að hinn alræmdi Skuggabaldur sé kominn á kreik eftir fjögurra ára hlé. Sömu nótt fær rannsóknarfulltrúinn Helena Vesterberg ábendingu um að einn af nánustu samstarfsfélögum hennar á deild ofbeldisglæpa sé flæktur í málið. Einhver sem virðist hafa villt um fyrir leitinni að Skuggabaldri fjórum árum áður.
Á sama tíma og Helena reynir að koma upp um Skuggabaldur og hjálparhellu hans innan lögreglunnar stendur samband hennar við Rikard á völtum fótum. Enn flækjast málin þegar Elías, heillandi vinnufélagi hennar, gefur henni ýmis merki sem erfitt er að ráða í. Getur hún treyst honum? Eitt er víst, sannleikurinn er ótrúlegri en hana hefði nokkurn tíma órað fyrir.
Skuggabaldur er þriðja bókin í seríunni Morðin í Leirvík, með bráðsnjalla og breyska rannsóknarfulltrúanum Helenu í aðalhlutverki. Fyrri bækurnar, Sjónarvottur og Skuggaleikur, njóta gífurlegra vinsælda sem og höfundurinn Anna Bågstam. Ekki láta þessa æsispennandi glæpasögu framhjá þér fara!