
Part of Series
Kona hverfur við undarlegar aðstæður og allt bendir til þess að henni hafi verið rænt. Stuttu síðar rekur lík á land í Leirvík, friðsælu sjávarþorpi við Eyrarsund og erfiðlega gengur að bera kennsl á líkið. Rannsóknarfulltrúinn Helena Vesterberg býr í Leirvík og blandast í málið því konunni sem var rænt er Lísa, besta vinkona hennar. Helena gerir allt í sínu valdi til þess finna Lísu og eftir því sem rannsóknin á hvarfi hennar vindur upp á sig kemur í ljós að ekki er allt með felldu í þorpinu snotra við Eyrarsund. Pólitísk öfl reyna að hafa áhrif á gang lögreglumála á staðnum og allt er á suðupunkti vegna yfirvofandi leiðtogafundar Evrópu í nágrenninu. Inn í æsispennandi atburðarásina fléttast flókið einkalíf Helenu sem, ásamt því að hugsa um aldraðan föður sinn, reynir að halda nýjum kærasta leyndum fyrir samstarfsfólki sínu, með misjöfnum árangri. Helenu Vesterberg þekkja íslenskir lesendur úr fyrstu bókinni í Morðunum í Leirvík, Sjónarvotti, sem sló rækilega í gegn á Storytel. Helena Vesterberg svíkur ekki lesendur sína í þessari nýju bók. Hér í frábærum lestri Birgittu Birgisdóttur.

